JANUS – Babywool

Janus Babywool er framleidd úr mjúkri 100% Merino ull eða Merino ullarblöndu. Ull er eitt það besta sem þú getur klætt barnið þitt í. Fötin eru mjög þægileg og mjúk, og eiginleikar ullarinnar sjá til þess að barninu er hlýtt án þess þó að verða þvalt eða sveitt. Ullin getur dregið í sig allt að 30% raka án þess að vera blaut viðkomu, þannig að jafnvel þrátt fyrir að blotna eða svitna verður þeim ekki kalt. Öll fötin eru einnig prófuð og samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.

Allan ullarfatnað frá Janus má þvo í þvottavél á ullarkerfi með ullarþvottaefni, og eru því fötin auðveld í meðhöndlun. Merino ull er einnig sjálfhreinsandi og festir ekki vonda lykt auðveldlega.

Þú getur treyst því að barninu þínu líði vel í ullarfatnaði. Janus ullarfatnaður heldur réttu hitastigi, þar sem hann andar einstaklega vel og ver börnin á köldum og rökum dögum.