Prinsa og prinsessuull

Með fallegri hönnun sameinast notagildi, skemmtilegir litir og munstur. Flíkurnar eru fallegar og hlýjar og sjá til þess að börnunum líði vel í amstri dagsins.

Börn hafa gott af því að klæðast ull allt árið þar sem ullin hefur þann einstaka eiginleika að svala í hita og hita í kulda. Janus ullarfatnaðurinn heldur hita á börnunum og ver þau á köldum og rökum dögum. Ullarfatnaður andar einnig vel og getur dregið í sig 30% raka án þess að virka blaut. Ef hún blotnar heldur hún þó samt áfram að vera hlý og verður ekki þvöl og köld eins og mörg önnur efni.

Öll fötin eru prófuð og  samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.
Allan ullarfatnað frá Janus má þvo í þvottavél á ullarkerfi með ullarþvottaefni.