Design Wool ullarfatnaður er þægilegur og nýtískulegur fatnaður til notkunar í útivist, frístundir, heima og í vinnu. Hettupeysan er gerð úr hlýrri og mjúkri 100% merino ull sem veitir hlýju í kulda, er svalandi í hita og getur dregið í sig 30% raka, án þess að virka blaut. Hún hentar vel til æfinga, daglegrar notkunar og sem kósý peysa í bústaðinn eða heima.
Efni:
100% Merino ull
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.