LightWool línan frá Janus er létt, þunn og þægileg og passa fötin einstaklega vel til notkunar á vorin og sumrin, þó það sé að sjálfsögðu hægt að nota þau allt árið. Þau hleypa rakanum frá líkamanum vel í gegn, verða ekki köld og þvöl ef þau blotna og þorna hratt.
LightWool fötin eru úr mjög þunnri 100 % Merino ull. Þú finnur varla mýkri og léttari ullarfatnað.