Ull/bómull fötin frá Janus eru afskaplega mjúk viðkomu og haldast vel í þvotti. Ytra lagið er 100% Merino ull á meðan innra lagið er 100% bómull. Þar sem innra lagið er bómull geta þau nýst vel fyrir börn sem eru sérstaklega viðkvæm og eiga erfitt með að vera í ullinni innst. Á sama tíma veitir ullin hlýju og þægindi með sínum einstöku eiginleikum.
Efni:
100% Bómull innra lag.
100% Merino ull ytra lag.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo fötin í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.