Janus Airwool 260 ullarbolurinn er gerður úr 100% Merino ull sem er burstuð að innan fyrir auka einangrun á hita og mýkt. Hann hentar vel sem innsta lag í útivistina og líka fyrir hversdagslega notkun.
Bolurinn er sportlegur og aðsniðinn með hálfrenndu hálsmáli, háum kraga og Raglan ermum. Bolurinn er í þykktinni Extra Warm 260 g/m2.
Merino ullin veitir hlýju í kulda, er svalandi í hita og getur dregið í sig 30% raka, án þess að virka blaut.
Efni:
100% Merino ull
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.