Ull og tencel

Ull og tencel flíkurnar frá Safa eru þægilegar flíkur sem henta bæði til hversdagslegar notkunar og sem auka lag. Tencel er eins konar silkilíki sem bæði styrkir og mýkir þegar því er blandað saman við ullina. Tencel er slitsterkt efni bæði þegar það er blautt og þurrt. Það er rakadrægt og andar vel, sem gerir það að góðri viðbót við ullina. Efnið er umhverfisvænt og er unnið úr Eukalyptustrjám í sjálfbærri skógrækt. Það er 100% niðurbrjótanlegt og hægt að endurvinna. Fatnaður með Tencel í er mjúkur og léttur, og passar vel fyrir þá sem eru með viðkvæma húð.