ENGEL Ull/silki

Engel Natur er þýskt fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á náttúruna, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð.
Mottóið þeirra er: Fyrir ást á húðinni okkar og umhverfinu.

Allar vörurnar frá Engel eru framleiddar í Þýskalandi og notast þeir einungis við náttúruleg efni sem lífræna bómull, lífræna Merino ull og Mulberry silki. Engin skaðleg efni er að finna í fötunum og ekki er nauðsynlegt að þvo þau fyrir notkun. Öll efnin sem notuð eru í fötin bera virta gæðastaðla frá GOTS og Naturtextil – IVN, sem eiga við lífrænt ræktuð náttúruleg efni í framleiðslu og taka fyrir framleiðsluna alla í sínum stöndurdum, frá því hvaðan efnið kemur fram að tilbúinni vöru. Eins leggur fyrirtækið mikla áherslu á að sækja sín hráefni sem stysta vegalengd og framleiðir rúmlega 40% af rafmagni fyrir framleiðsluna sjálf með sólarorku. Fyrirtækið er fjölskyldurekið og hefur verið starfandi í yfir 85 ár. Árið 1982 sneri Engel sér alfarið að náttúrulegum efnum og hefur frá þeim tíma framleitt vörur í hæsta gæðaflokki.