Sonett ullarþvottur

Ull er náttúruefni og mikilvægt er því að nota sápu sem eyðir ekki náttúrulegum eiginleikum ullarinnar.

Í mörgum almennum þvottaefnum eru fituleysandi efni, sem hentar oft vel fyrir almennan þvott. En í ullinni er náttúruleg fita sem við viljum viðhalda til að ullartrefjarnar fái að halda sínum náttúrulegu eiginleikum.

Þess vegna er mikilvægt að nota ullarsápu, sem er sérstaklega hugsuð fyrir þvott á ull og silki.

Við mælum einnig með að nota ullarprógram í þvottavélinni, þvo ullarfötin á röngunni og loka rennilásum og smellum til að tryggja að endingin verði með allra besta móti.