Sokkarnir eru gerðir úr ullarfrotté, sem gerir þá þykka og notalega. Þeir eru hlýir og mjúkir á, anda vel og ullin viðheldur hlýjunni þó þeir blotni. Þægilegir og góðir innisokkar sem sjá til þess að þér verði ekki kalt á fótunum.
Efni:
80 % Ull, 17 % Polyamid og 3 % Lycra
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.