JANUS x ULLARKISTAN – Sér framleiðsla fyrir íslenska veðráttu.

Ridder Slitesterk var nafnið á vinsælum barnafötum frá Janus upp úr 1930. Með hana í huga létum við sérframleiða línu sem er sérstaklega hugsuð fyrir íslenska veðráttu. Þessi lína fæst því hvergi annars staðar en hjá okkur í Ullarkistunni.

Ástæðan fyrir því að Ridder Slitesterk línan varð fyrir valinu er að flíkurnar eru af þykkari gerð heldur en þær “klassísku” frá Janus. Leggings buxurnar og bolirnir eru 215 g/m2 og eru því ofboðslega hlý og slitsterk, án þess þó að vera of þykk til að nota innanundir. Við vildum einnig geta boðið upp á klassíska línu sem nær að spanna aldur frá 2 ára og upp í unglingsaldur. Flíkurnar er því að finna í stærð 90 og alveg upp í 170 cm.

Í línunni er að finna leggings buxur og boli, peysur með rennilás í hálsmáli, joggingbuxur, heilgalla, hjálmhúfur, tvöfaldar lambhúshettur, húfur og ullarkraga.

Fatnaðurinn er mjög þægilegur og mjúkur, og hefur nú þegar slegið í gegn sem bæði nær- og millifatnaður í leikskólann og skólann.

Öll fötin eru prófuð og  samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.
Allan ullarfatnað frá Janus má þvo í þvottavél á ullarkerfi með ullarþvottaefni.