Janus Classic ullarbolurinn er gerður Ășr ĂŸunnri og mjĂșkri 100% Merino ull. Hann hentar vel sem innsta lag. Bolurinn er með rĂșnnuðu hĂĄlsmĂĄli, stuttum ermum og er Ă ĂŸykktinni 160 g/m2.
Merino ullin veitir hlĂœju Ă kulda, er svalandi Ă hita og getur dregið Ă sig 30% raka, ĂĄn ĂŸess að virka blaut.
Efni:
100% Merino ull
Ăvottaleiðbeiningar:
Best er að ĂŸvo ullarföt Ă ĂŸvottavĂ©l ĂĄ ullarprĂłgrammi við 30°C. Notið ullarĂŸvottaefni og ĂŸvoið flĂkina ĂĄ röngunni, ĂŸĂĄ endist hĂșn lengur.
Forðist að setja Ă ĂŸurrkara.













