Húfan er gerð úr 100% Merino ull með neti að innan. Merino ullin veitir hlýju í kulda, er svalandi í hita og getur dregið í sig 30% raka, án þess að virka blaut.
Netið þjónar þeim tilgangi að mynda enn betri öndun við húðina og viðhalda réttu hitastigi þrátt fyrir mikinn raka, svita og átök í útivist, þar sem hiti frá kroppnum og kuldi frá umhverfinu mætast. Netið þornar einnig hraðar þar sem snertipunktarnir eru færri og loftflæðið betra.
Efni:
100% Merino ull.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.