Iris Exclusive Ull/Silki er léttur og þægilegur fatnaður framleiddur úr blöndu af 85% Merino ull og 15% náttúrulegu silki. Þessi föt eru einstaklega mjúk að vera í, auk þess sem silkið gefur þeim enn fínlegra yfirborð. Treyjurnar eru með silkikant í hálsmálinu og buxurnar með silkikanti í stað teygju.
Öll fötin eru prófuð og samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.
Allan ullarfatnað frá Janus má þvo í þvottavél á ullarkerfi með ullarþvottaefni.