Janus Airwool Ullarbolurinn er gerður úr 100% Merino ull sem er burstuð að innan fyrir auka einangrun á hita og mýkt. Hann hentar vel sem þykkara innsta lag eða einn og sér fyrir hversdagslega notkun. Bolurinn er í þykktinni Extra Warm 260 g/m2.
Þú getur treyst því að barninu þínu líði vel í ullarfatnaði. Janus ullarfatnaður heldur réttu hitastigi, þar sem hann andar einstaklega vel og ver börnin á köldum og rökum dögum.
Efni:
100% Merino ull
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.









