Ullarflís sokkaskór saffron

4.290 kr.

Ullarflís sokkaskór saffron

4.290 kr.

  • Ullarflís sokkaskór.
  • Þykkir, notalegir og hlýjir.
  • 100 % Merino ull.
  • Þykkt: 280 g/m2
  • Saffron Gulir.

Ullarflís sokkaskórnir eru gerðir úr 100% Merino ull sem er burstuð. Það gerir þá þykka, notalega og hlýja.
Ullin er náttúrulegt efni sem andar vel, hlýjar og temprar hitastig líkamans eftir þörfum.

Efni:

100% Virgin Merino ull.

Þvottaleiðbeiningar:

Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C og lága vindingu. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.

Má ekki setja í þurrkara.

Burstuð ull (ullarflís) hnökrar við notkun og þvott. Hægt er að bursta hana með litlum bursta af og til, til að hún viðhaldi áferð sinni.

Um Engel natur:

Engel Natur er þýskt fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á náttúruna, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Mottóið þeirra er: Fyrir ást á húðinni okkar og umhverfinu. Allar vörurnar frá Engel eru framleiddar í Þýskalandi og notast þeir einungis við náttúruleg efni sem lífræna bómull, lífræna Merino ull og Mulberry silki. Engin skaðleg efni er að finna í fötunum og ekki er nauðsynlegt að þvo þau fyrir notkun. Öll efnin sem notuð eru í fötin bera virta gæðastaðla frá GOTS og Naturtextil – IVN, sem eiga við lífrænt ræktuð náttúruleg efni í framleiðslu og taka fyrir framleiðsluna alla í sínum stöndurdum, frá því hvaðan efnið kemur fram að tilbúinni vöru. Eins leggur fyrirtækið mikla áherslu á að sækja sín hráefni sem stysta vegalengd og framleiðir rúmlega 40% af rafmagni fyrir framleiðsluna sjálf með sólarorku. Fyrirtækið er fjölskyldurekið og hefur verið starfandi í yfir 85 ár. Árið 1982 sneri Engel sér alfarið að náttúrulegum efnum og hefur frá þeim tíma framleitt vörur í hæsta gæðaflokki.

Upplýsingar um vöru

Barnastærð

,

Þér gæti einnig líkað við…