
- 100 % ull með leðurbryddingu.
- Ullin í hönskunum er eilítið þæfð sem gerir þá þéttari og hlýjari.
- Hanskarnir eru í þægilegri þykkt þannig að auðveldara er að vinna með höndunum heldur en í þykkum hönskum. Afskaplega hlýir og góðir hanskar, sem ekki fer mikið fyrir.
- Svartir.
Hanskana þarf að handþvo og má ekki setja í þvottavél.
Einnig mælum við með því að vera í þunnum hönskum/vettlingum yfir (skel – vind og vatnsheldum) ef nota skal hanskana í bleytu eða við mikla handavinnu. Þetta tryggir að þér sé hlýtt á höndunum, með ullina innst, en ver ullina gegn því að þæfast meira og skemmast.