Léttullin er þynnra ofin en þessi klassísku frá Janus. Hún er létt, þunn og þægileg. Hún hleypir rakanum frá líkamanum vel í gegn, verður ekki köld og þvöl ef hún blotnar og þornar hratt.
Efni:
100% Merino ull.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo húfuna í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.