Ull/Bambus

Ull/Bambus fötin frá Safa eru afskaplega mjúk viðkomu og haldast vel í þvotti. Ytra lagið er 100% Merino ull á meðan innra lagið er 100% Bambus viscose. Flíkin er því dúnmjúk inn við húðina og andar vel. Á sama tíma veitir ullin hlýju og þægindi með sínum einstöku eiginleikum. Þau henta því líka mjög vel fyrir viðkvæma húð þar sem bambus efnið er innst við húðina.