Þessi klassíska peysa er prjónuð úr 100% Norskri ull og er sérstaklega þykk og slitsterk. Náttúrulegu eiginleikar ullarinnar gerir Fitjar peysuna fullkomna í alls konar útiveru, andar vel og heldur á þér hlýju í hvaða aðstæðum sem er.
Efni:
100% Norsk ull.
Þvottaleiðbeiningar:
Hreinsun eða handþvottur í volgu vatni með ullarsápu. Móta meðan blaut og þurrka flatt, ekki hengja upp.
Má ekki setja í þurrkara.
Um Norlender:
Norlender er norskt fjölskyldufyrirtæki sem rekur sögu sína aftur til ársins 1927 þegar Ola Tveiten keypti sína fyrstu prjónavél og stofnaði Ola Tveiten Trikotasjefabrikk á bóndabænum Tveiten á Ostereyju fyrir utan Bergen.
Verksmiðjan er enn staðsett á Ostereyju þar sem allar peysurnar eru framleiddar ásamt því að lögð er áhersla á að nýta norska ull.