Janus Airwool 350 ullarjakkinn er gerður úr Merino ullarblöndu sem er burstuð að innan fyrir auka einangrun á hita og mýkt. Hann hentar vel sem millilag í útivistina, sem léttur jakki/peysa eða sem notaleg flík til notkunar dags daglega.
Jakkinn er stílhreinn með renndum vösum. Jakkinn er í þykktinni Plus Extra Warm 350 g/m2.
Merino ullin veitir hlýju í kulda, er svalandi í hita og getur dregið í sig 30% raka, án þess að virka blaut.
Efni:
83% Merino ull, 14% Polyamid og 3% Elestan
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.