Hér má finna fallega hannaðan ullarfatnað í skemmtilegum litum á hressa krakka og unglinga frá 2-16 ára. Janus GO! línan samanstendur af bolum og leggingsbuxum, í þunnri 100% Merino ull, sem hentar vel sem innsta lag. Ásamt þykkari peysum, hettupeysum , heilgöllum og joggingbuxum í ullarfrotté, sem henta vel sem millilag eða fatnaður fyrir daglega notkun. Einnig má finna húfur, vettlinga og sokka í stíl.
Ullin er þunn, mjúk og þægileg og hefur þann einstaka eiginleika að svala í hita og hita í kulda. Ullarfatnaðurinn andar einnig vel og getur dregið í sig 30% raka án þess að virka blautur. Ef svo illa vill til að ullin blotni alveg heldur hún samt áfram að vera hlý og verður ekki köld og þvöl.
Öll fötin eru prófuð og samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.
Allan ullarfatnað frá Janus má þvo í þvottavél á ullarkerfi með ullarþvottaefni.