Léttull

Léttull frá Janus er fatnaður úr sérstaklega þunnri 100% Merino ull.

Flíkurnar eru ótrúlega mjúkar, þægilegar og henta vel fyrir vor og sumar, þó það sé að sjálfsögðu hægt að nota þær allt árið. Þú finnur varla mýkri ullarfatnað til að klæða barnið í. Ullin andar einstaklega vel og sér til þess að barninu líður vel, hvort sem það er heitt eða kalt. Öll fötin eru prófuð og samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni og má þvo í þvottavél á ullarkerfi með ullarþvottaefni.