Janus Classic Extra Warm ullarbolurinn er gerður úr mjúkri 100% Merino ull og er þykkasta gerðin af hálfrenndum bolum frá Janus. Hann hentar vel sem innsta lag í útivistina og á köldum dögum og er einnig góður að nota einan og sér sem peysu.
Bolurinn hálfrenndur með háum kraga, löngum ermum og aðeins síðari að aftan. Extra Warm bolurinn er í þykktinni 260 g/m2.
Merino ullin veitir hlýju í kulda, er svalandi í hita og getur dregið í sig 30% raka, án þess að virka blaut.
Efni:
100% Merino ull
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.