Janus Classic Extra Warm ullarbuxurnar eru gerðar úr mjúkri 100% Merino ull og eru þykkasta gerðin af leggings buxum frá Janus. Þær henta vel sem innsta lag í útivistina og á köldum dögum en henta einnig sem notalegar buxur eða til að sofa í.
Buxurnar eru háar í mittið og með breiða og mjög þægilega teygju og gott snið. Extra Warm buxurnar eru í þykktinni 260 g/m2.
Merino ullin veitir hlýju í kulda, er svalandi í hita og getur dregið í sig 30% raka, án þess að virka blaut.
Efni:
100% Merino ull
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.