Janus ullarbuxurnar / joggingbuxurnar eru gerðar úr 100% Merino ull og eru mjúkar og þægilegar við húðina.
Buxurnar henta vel til notkunar sem venjulegar joggingbuxur, í vetrarútivistina eða sem notalegar kósýbuxur heima við.
Buxurnar eru með teygju, bandi í mittið og eru í þykktinni Extra Warm 248 g/m².
Merino ullin veitir hlýju í kulda, er svalandi í hita og getur dregið í sig 30% raka, án þess að virka blaut.
Efni:
100% Merino ull
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.








