Ull/Bambus fötin frá Safa eru afskaplega mjúk viðkomu og haldast vel í þvotti. Flíkin er dúnmjúk inn við húðina og andar vel. Á sama tíma veitir ullin hlýju og þægindi með sínum einstöku eiginleikum. Þau henta því líka mjög vel fyrir viðkvæma húð.
Efni:
60% Merino ull og 40% Bambus viscose.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo fötin í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.











