Ullarflís Buxur sand

8.990 kr.

Ullarflís Buxur sand

8.990 kr.

  • Ullarflís buxur.
  • Þykkar og notalegar buxur úr burstaðri ull.
  • Með mjúku ullarstroffi í mitti og á skálmum.
  • 100 % Merino ull.
  • Þykkt: 280 g/m2
  • Sand melange

Ullarflís buxurnar eru gerðar úr 100% Merino ull sem er burstuð. Það gerir þær þykkar og notalegar og henta því vel sem ysta lag.
Ullin er náttúrulegt efni sem andar vel, hlýjar og temprar hitastig líkamans eftir þörfum.
Buxurnar eru með mjúku ullarstroffi í mitt og á skálmum.

Efni:

100% Virgin Merino ull.

Þvottaleiðbeiningar:

Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C og lága vindingu. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.

Má ekki setja í þurrkara.

Burstuð ull (ullarflís) hnökrar við notkun og þvott. Hægt er að bursta hana með litlum bursta af og til, til að hún viðhaldi áferð sinni.

Um Engel natur:

Engel Natur er þýskt fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á náttúruna, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Mottóið þeirra er: Fyrir ást á húðinni okkar og umhverfinu. Allar vörurnar frá Engel eru framleiddar í Þýskalandi og notast þeir einungis við náttúruleg efni sem lífræna bómull, lífræna Merino ull og Mulberry silki. Engin skaðleg efni er að finna í fötunum og ekki er nauðsynlegt að þvo þau fyrir notkun. Öll efnin sem notuð eru í fötin bera virta gæðastaðla frá GOTS og Naturtextil – IVN, sem eiga við lífrænt ræktuð náttúruleg efni í framleiðslu og taka fyrir framleiðsluna alla í sínum stöndurdum, frá því hvaðan efnið kemur fram að tilbúinni vöru. Eins leggur fyrirtækið mikla áherslu á að sækja sín hráefni sem stysta vegalengd og framleiðir rúmlega 40% af rafmagni fyrir framleiðsluna sjálf með sólarorku. Fyrirtækið er fjölskyldurekið og hefur verið starfandi í yfir 85 ár. Árið 1982 sneri Engel sér alfarið að náttúrulegum efnum og hefur frá þeim tíma framleitt vörur í hæsta gæðaflokki.

Upplýsingar um vöru

Litur

Barnastærð

, ,