Ullarsokkarnir eru milliþykkir og passa því í flest alla skó. Þeir eru ekki með þröngri teygju efst heldur eru þeir jafnir alla leið upp eftir fætinum og þrengja þeir því ekki að. Einnig eru þeir hlýir og mjúkir á, anda vel og ullin viðheldur hlýjunni þó þeir blotni.
Efni:
65 % Ull, 32% Polyamide og 3 % Elastin
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.