Design Wool

Janus hefur nú endurnýjað hina sívinsælu Design Wool línu fyrir dömur, nú með fallegu munstri og nýjum litum. Design Wool ullarfatnaður fyrir dömur er þægilegur og nýtískulegur fatnaður til notkunar í útivist, frístundum, heima og í vinnunni.

Öll fötin eru prófuð og  samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.

Allan ullarfatnað frá Janus má þvo í þvottavél á ullarkerfi með ullarþvottaefni.