Janus hefur nú endurnýjað hina sívinsælu Design Wool línu fyrir dömur, nú með fallegu munstri og nýjum litum. Design Wool ullarfatnaður fyrir dömur er þægilegur og nýtískulegur fatnaður til notkunar í útivist, frístundum, heima og í vinnunni.
Öll fötin eru prófuð og samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.
Efni:
83% Merino ull, 14% Polyamid og 3% Elastin.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.