Design Wool ullarfatnaður er þægilegur og nýtískulegur fatnaður til notkunar í útivist, frístundir, heima og í vinnu. Joggingbuxurnar eru einar af okkar þykkustu vörum ásamt Design Wool jakkanum. Buxurnar eru mjúkar og þægilegar með vösum og góðri teygju í mittið. Þær gagnast vel til æfinga eða sem kósý buxur í bústaðinn eða heima.
Efni:
83% Merino ull, 14% Polyamid og 3% Elastin.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.