Merino ullin er mjúk og þægileg. Hún andar vel og getur dregið í sig 30% raka án þess að virka blaut. Ullarfötin hleypa rakanum frá líkamanum vel í gegn, verða ekki köld og þvöl ef þau blotna og þorna hratt.
Efni:
100% Merino ull
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo fötin í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.