Ullarsokkarnir eru með frotté sóla sem gefur auka þykkt undir fótinn. Á sama tíma eru þeir nægilega þunnir til að passa í flesta skó án þess að þrengja að fætinum. Hlýir og mjúkir á, anda vel og ullin viðheldur hlýjunni þó þeir blotni. Virkilega góðir ullarsokkar sem henta vel fyrir skíðin, göngur og útivist.
Efni:
80% Ull, 17% Polyamid og 3% Lycra
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.