Klassísk peysa í Aran prjóni. Kaðalprjón í bland við perluprjón gerir peysuna fallega, ásamt því að hún er framleidd í víðu sniði fyrir nútímalegt útlit. Peysan er úr norskri ull. Tora er slitsterk og þægileg í sniðinu. Náttúrulegu eiginleikar ullarinnar gera peysuna fullkomna í útiveru, hún andar vel og heldur á þér hlýju í hvaða aðstæðum sem er.
Efni:
100% Norsk ull.
Þvottaleiðbeiningar:
Hreinsun eða handþvottur í volgu vatni með ullarsápu. Móta meðan blaut og þurrka flatt, ekki hengja upp.
Má ekki setja í þurrkara.
Um Norlender:
Norlender er norskt fjölskyldufyrirtæki sem rekur sögu sína aftur til ársins 1927 þegar Ola Tveiten keypti sína fyrstu prjónavél og stofnaði Ola Tveiten Trikotasjefabrikk á bóndabænum Tveiten á Ostereyju fyrir utan Bergen.
Verksmiðjan er enn staðsett á Ostereyju þar sem allar peysurnar eru framleiddar ásamt því að lögð er áhersla á að nýta norska ull.