Ullarleggings buxur í 100% Merino ull. Léttar og þægilegar með góðri teygju í mittið og blúndu neðst þar sem skálmarnar enda. Klassíska þykktin sem hentar vel undir annan fatnað. Ullarfötin hleypa rakanum frá líkamanum vel í gegn, verða ekki köld og þvöl ef þau blotna og þorna hratt.
Efni:
100% Merino ull.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo ullarföt í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.