Janus GO! línan samanstendur af bolum og leggingsbuxum, í þunnri 100% Merino ull, og þykkari peysum, hettupeysum, heilgöllum og joggingbuxum í ullarfrotté, sem henta vel sem millilag eða fatnaður fyrir daglega notkun. Einnig má finna húfur, vettlinga og sokka í stíl.
Ullarbolur úr 100% Merino ull. Léttur og þægilegur með stroffi á ermunum. Klassíska þykktin sem hentar vel undir annan fatnað. Andar vel og heldur hita þrátt fyrir að blotna.
Öll fötin eru prófuð og samþykkt skv. Ökotex 100 staðlinum þar sem staðfest er að þau innihaldi ekki heilsuspillandi efni.
Efni:
100% Merino ull.
Þvottaleiðbeiningar:
Best er að þvo í þvottavél á ullarprógrammi við 30°C. Notið ullarþvottaefni og þvoið flíkina á röngunni, þá endist hún lengur.
Forðist að setja í þurrkara.